les deux jolies
EndurhæfingHildur og Ragga : lífið í París
Jæja þá er ég búin að vera á Íslandi í rúma 2 mánuði, ótrúlegt. Skrapp reyndar til New York í millitíðinni. New York var algjört æði þrátt fyrir óvænt kuldakast sem varð til þess að ég fór ekki úr úlpunni minni alla ferðina. Gaman að hitta Óskar minn og vera með fjölskyldunni eftir langan tíma. Í NY gerðum við allt það helsta, fórum á MOMA safnið, flott út að borða, á ground zero yfir til Brooklyn og margt fleira.Fyrir mánuði fór ég í aðgerð á öxlinni sem var ástæða þess að ég þurfti að koma heim frá París fyrr en ég ætlaði mér. Ég er öll að koma til og er í endurhæfingu sem felst meðal annars í því að lyfta hendinni upp og niður eins og maður gerir með lóð nema ég er ekki með nein lóð, svo mikill aumingi er ég eftir of langa veru í fatla.
Til að stytta veikindafríið mitt hef ég ákveðið að skella mér til Spánar þann 9. júni næstkomandi, fer með tveimur vel völdum vinkonum og við verðum í íbúð með útsýni yfir haf og stönd rétt fyrir utan Barcelona, akkúrat það sem ég hafði í huga fyrir þetta frí. Fullkomin blanda sólar og menningar.
Langaði bara aðeins að tékka inn.
Paix
Ragga
HeimkomaHildur og Ragga : lífið í París
Á morgun kem ég heim. Á sunnudaginn er ég að fara í fermingu hjá Snorra bróður og svo er ég að fara til New York á miðvikudaginn:)Síðasta vikanHildur og Ragga : lífið í París
Nú fer að styttast í að ég komi heim og það er fullt sem ég á eftir að gera hér áður en ég fer. Þegar maður býr í París þá er maður einhvernveginn alltaf að fresta því að skoða allt sem maður þarf að skoða af því að maður heldur að maður hafi svo langan tíma, en svo flýgur þetta bara. (vá hversu oft kom "maður" fyrir í þessari setningu, hefði ekki verið vel líðin í íslenskuritgerð) Ég á eftir að kaupa mér föt, skoða ýmisleg söfn sem hafa verið lengi á dagsskrá. Svo þarf ég að borða fullt af frönskum mat og kaupa vín á meðan það er svona ódýrt. Ég þarf líka að fara og gefa einhverjum fötin mín því að ég er með allt og mikið dót með mér.
Þema vikunnar sem er að byrja verður:
Vá þetta er í síðasta skipti sem ég borða morgunmat á mánudegi í París.
o.s.frv með alla hluti sem ég geri þessa síðustu daga.
Í gær var t.d. síðasti laugardagurinn minn, þá gerði ég ýmislegt skemmtilegt og hitti gott fólk um kvöldið.
Hann rignirHildur og Ragga : lífið í París
Í dag ringdi mikið í París. Það er eins og allt deyji þegar það rignir, það er enginn á götunum nema fólkið sem mundi eftir að taka með sér regnhlífar, hinir flýja allir inn á kaffihús eða bíða undir skyggni þangað til að rigningin gengur yfir. Engum dettur í hug að labba á götunum ef það er regnhlífalaust. Nema mér.Þegar ég var að labba heim áðan kom upp að mér ungur maður og spurði mig hvort að ég vildi ekki fá regnhlífina hans. Samtalið var svona:
Hann: Mademoiselle, viltu eiga regnhlífina mína?
Ég: Nei takk, þetta er allt í lagi.
Hann: Jú í alvöru, ég er alveg að koma heim til mín þannig að þú mátt alveg eiga hana. Það er ekki gott að blotna.
Ég: Nei, þetta er ekkert mál, ég býst við að ég sé ekki þessi regnhlífartýpa. (ha?)
Þá fór hann að hlægja og óskaði mér góðs eftirmiðdags. Mér fannst þetta frekar fyndið eftir á. Ég hefði samt eiginlega átt að taka við henni því að ég var blaut sem svampur (sem er blautur) þegar ég kom heim.
Megi hann hanga þurr.
Friður
BloggleysiHildur og Ragga : lífið í París
Biðst afsökunar á bloggleysinu, gerði tilraun til að búa til nýtt blogg en það entist ekkert hjá mér þannig að ég ákvað að reyna að halda bara aðeins áfram hér.Í síðustu viku átti sigga afmæli. Sá dagur hefði ekki getað verið betri, hittumst nokkur í Lúxemborgargarði í sól og hita, drukkum vín og borðuðum ekta franskan dejeuner og sátum allan daginn.
Síðustu dagar hafa einkennst af:
20 ára krísunni
hræðilegri metro lífsreynslu
afmælinu hennar siggu
sól og góðu veðri sem allt í einu hvarf
gítarspili
Prjónaskap
video
hangsi
og endalausri skemmtun.
Kem heim eftir tæpar tvær vikur.
Hlakka til að sjá ykkur kæru vinir
Paris je t'aimeHildur og Ragga : lífið í París
Þá er ég komin aftur til Parísar eftir langt og gott frí heima á Íslandi. Fríið var mjög gott og einkenndist það af hangsi, sjónvarpsglápi, svefni, vinum, fjölskylduboðum og auðvitað smá djammi, mjög góðir tímar. Það var samt ágætt að koma aftur í litlu sætu íbúðina og aðlagast borginni upp á nýtt. Ég er samt ennþá í fríi hér því að skólinn byrjar ekki fyrr en 8. febrúar þannig að ég er að reyna að nýta tímann í að skoða söfn, labba um og eyða tíma með skemmtilegu fólki. Við Vera fórum til dæmis á mjög skemmtilegt safn í gær sem er safn út frá Louvre- mjög gaman. Fór að skrá mig í skólann í dag og það er alveg makalaust hvað það er mikið vesen að skrá sig í einn kúrs. Það tók 2 og hálfan klukkutíma og ég þurfti að fara í tvær byggingar til skiptis, en nú er ég allavega officially orðin aftur nemandi í Sorbonne. Ekki leiðinlegt:)Bisous
Prófin að klárastHildur og Ragga : lífið í París
Þá er 4 klukkutíma lokapróf að baki og önnin að klárast. Bara munnlegt próf eftir og jólagjafainnkaup. Síðustu dagar hafa farið í lærdóm, kaffihús og mikil veikindi og skyndilækningar.
Annars kíkti ég til Íslands í síðustu viku í tilefni af doktorsvörn móður minnar. Hún stóð sig með prýði og óska ég henni enn og aftur til hamingju.
A bientot
Nú við teljum niður.Hildur og Ragga : lífið í París
<IFRAME NAME=iframe width="450" height="60" SRC=http://www.jol.is/teljari.html SCROLLING=NO FRAMEBORDER=0 FRAMESPACING=0 FRAMEPADDING=0 BORDER=0></IFRAME>Rigning, lakkrískökur og jólaskrautHildur og Ragga : lífið í París
Það er grenjandi rigning hér í París. Get ekki sagt að ég sé að elska það. Væri alveg til í að það væri frekar allt á kafi í snjó, eins og mér skilst að það sé heima. En það þýðir ekkert að kvarta yfir því. Ef ég þekki mig rétt þá væri ég sennilega kvartandi yfir snjónum heima ef ég væri þar. Ég ætla samt að vona að það verði snjór þegar ég kem heim um jólin.
Ragga er núna á Íslandi í veislufríi. Verður heima í tæpa viku og fer í ansi margar veislur á þeim tíma. Hún var búin að lofa okkur hér í France að koma með hráefni í lakrrískökur, vona að hún gleymi því ekki. Við stelpurnar í bekknum ætlum nefnilega að hafa bökunardag næstu helgi. Allir ætla að gera e-ð gómsætt frá sínu landi og við Íslendingarnir ætlum að baka bestu kökur í heimi, lakkrískökur.
Svo stefnum við á að jólaskreyta í lok vikunnar. Setja negulnagla í mandarínur, drekka jólaglögg og hlusta á jólalög. Ég trúi því ekki að það sé svona stutt í jólin.
En ég þarf að fara að koma mér út í rigninguna svo ég verði ekki of sein í skólann.
Bisous-Hildur
Vetur í ParísHildur og Ragga : lífið í París
1. nóvember skall skyndilega á vetur hér í París. Þann morguninn var allt í einu búið að kólna um 10 gráður og hefur verið kalt síðan. Foreldrar okkar Hildar og Snorri og Salvör komu í heimsókn síðasta miðvikudag og fóru í dag (mánudag). Þessir dagar voru algjör sæla og viljum við þakka þeim kærlega fyrir okkur og fyrir komuna. Það var mjög skrýtin tilfinning að sýna forledrum sínum íbúðina sína og kunna betur á allt en þau því að hingað til hefur það verið öfugt. Við sýndum þeim það helsta sem er að sjá í París og förum út að borða á hverju kvöldi, svo gátum við líka aðeins kíkt í búðir sem var ekki verra.En nú tekur hið daglega líf aftur við. Nú þarf maður að fara að snúa sér að náminu því það fer að styttast í próf.
Svo er líka gaman að segja frá því að þegar við útskrifumst í desember þá verður 3ja klukkutíma athöfn í aðalsal Sorbonne-háskóla og við þurfum að vera í svona bandarískum graduation búining með hatt og allt heila klabbið. Það finnst mér frekar ófranskt en fyndið. Þannig að þetta verður árið þar sem ég útskrifaðist tvisvar.
Bisous Ragga
